Húsið er byggt fyrir meira 100árum á hefðbundinn Galiciskan hátt. Eins og í íslenskum fornaldarhúsum var neðsta hæð hússins notuð fyrir nautgripi og efri hæð fyrir stofu, eldhús og svefnherbergi.

Veggirnir eru 85cm þykkir! Ótrúlegt en mjög huggulegt, það heldur líka hita inni í húsinu á veturna og hita úti á sumrin. Veggirnir eru svo fallegir að lítið þarf af skrauti. Húsið var fágað upp á nýtt árið 2002 og þriðju hæðinni bætt við. Herbergin eru mjög kósý og notaleg. Það eru þrjú svefnherbergi og þrjú baðherbergi.

Eldhús og stofa eru á fyrstu hæð hússins, þar er samblanda af gömlum og nýjum stíl. Öll áhöld og tæki í eldhúsi eru ný.
Á annarri hæð er gallery, sem við notum einnig fyrir rækt (þar er hlaupabretti og hlaupahjól). Staðurinn er skemmtilegur og þar er annað hvort hægt að púla í ræktinni eða njóta þess að slappa af og mála mynd. Á annarri hæð er einnig inngangur, eitt svefnherbergi með baðherbergi og gesta klósett. Á þriðju hæð eru tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi.


Góðan dag.
Langar að forvitnast um húsið. Eru 2 pör með 3 börn sem erum að spá í ferðalag á næstunni. Ekki vitað alveg hvenær. Langar að fá upplýsingar um verð per.viku og kjör ef við myndum leigja heilan mánuð.
Með kærri kveðju,
Helga